Magnús Már Einarsson skrifar frá Rotterdam í Hollandi
Grétar Rafn Steinsson leikmaður íslenska landsliðsins verður í sviðsljósinu á morgun þegar Ísland mætir Hollandi í Rotterdam. Grétar veit vel að verkefnið er erfitt en vonast eftir að íslenska landsliðið geti nýtt föst leikatriði vel annað kvöld.
,,Það er spurning hversu mikið við höfum boltann því það þarf að hafa boltann til að spila honum á milli sín. Við þurfum að nýta þau tækifæri sem við fáum, nýta föstu leikatriðin og taka okkur tíma í það sem við gerum. Við erum með gott lið og ef allt gengur upp hjá okkur og með smá heppni getum við náð góðum úrslitum."
,,Við verðum að gera okkur grein fyrir því að Holland er með feykisterkt lið og það er valinn maður í hverri stöðu. Topp leikmenn á Evrópumælikvarða og heimsmælikvarða. Ég held það verði bara frábær upplifun fyrir leikmenn að spila á móti þeim á þessum stóra velli. Ef það á einhvern tíma að fara að njóta þess að spila fótbolta og sparka í Hollendinga þá er tækifærið núna."
Ljóst er að á pappírunum er mikill munur á hollenska og íslenska liðinu en Hollendingar eru með margar stórstjörnur og hafa á að skipa einu besta landsliði í heimi.
,,Við verðum að nýta okkur tækifærið og pirra þá og vera svolítið harðir af okkur og hræða þá í föstum leikatriðum. Taka okkur tíma og láta þá finna að þetta er það sem við höfum lært og það sem við erum sterkir í því þeir eru skíthræddir við föstu leikatriðin okkar. Við vitum það og það verður gaman að sjá hvernig þeir ætla að leysa það."
,,Áhorfendurnir eru mjög góðir hérna í Hollandi þegar vel gengur. Þetta verður hörkuleikur og ef við byrjum vel þá getur þetta orðið athyglisverður leikur, en aftur á móti, ef vel gengur hjá hollenska liðinu þá getur þetta orðið mjög erfitt."
Grétar Rafn var hjá AZ Alkmaar í Hollandi þar sem hann var frá í ágúst 2005 og fram í janúar á þessu ári er hann gekk í raðir enska úrvalsdeildarféalgsins Bolton. Með AZ Alkmaar lék hann á De Kuip leikvangi Feyenoord í Rotterdam þar sem leikurinn á morgun fer fram.
,,Ég á frábærar minningar eftir að hafa komist í úrslitaleik hérna og spilað toppleiki hérna með AZ gegn Feyeenoord. En fótbolti er alltaf fótbolti og ég hef enga trú á tölfræði eða neinu svoleiðis. Það eru bara hlutir sem gerast inni á vellinum sem ákveða hvernig leikurinn fer. Við erum vel undirbúnir og leikmenn eru tilbúnir. Ég hlakka mikið til að spila þennan leik því það er engin pressa á okkur og við eigjum að njóta þess að spila. Vegna þess að það eru margir sem væru tilbúnir að vera í okkar sporum, að spila á móti Hollendingum á þessum velli."
Í hollenska hópnum eru nokkrir fyrrverandi liðsfélagar Grétars Rafns þó ekki sé víst hversu margir fái tækifæri í leiknum. Grétar hlakkar til að takast á við þá.
,,Það verður mjög gaman að mæta þeim. Reyndar er enginn þeirra í byrjunarliðinu á morgun en allur bekkurinn eru leikmenn sem ég hef spilað með. Það verður virkilega gaman að spila á móti þeim, þetta eru hörkuleikmenn líka, og vonandi fæ ég að spila á móti einhverjum. Það er gaman að hitta þá aftur, en samt sem áður eru þetta vinir utan vallar og óvinir innan vallar. Þannig er það bara og ef ég fæ tækifæri til að sparka í þá mun ég hiklaust taka það."
Hræðilegt ástand hefur skapast á Íslandi í fjármálaheiminum þar sem allir stóru bankarnir eru komnir undir stjórn ríkisins og ástandið til framtíðar í mikilli óvissu. Grétar Rafn fylgist með því sem er að gerast heima og segir menn leggja allt í leikinn.
,,Það eru erfiðir tímar og þetta snertir okkur öll en núna er tími til að standa saman. Við Íslendingar þurfum að standa saman núna, það eru erfiðir tímar framundan en við getum komist í gegnum þetta. Við erum Íslendingar og þetta er eitthvað sem við getum. Við leikmennirnir munum leggja okkar af mörkum og sýna að það er mikil samstaða í gangi til Íslands. Leikmenn munu gefa alt sem þeir eiga í þennan leik og vonandi getur fólk gleymt ástandinu í smá tíma og horft á einn fótboltaleik," sagði Grétar að lokum við Fótbolta.net.




