Heimild: Sky
Richard Dunne sagði í gær að hann sé þreyttur á að hlusta á spurningar um framtíð Stephen Ireland í írska landsliðinu og segir að slíkar spurningar pirri liðsfélaga sína í landsliðinu.
Ireland hefur ekki spilað fyrir Írland síða hann féll í ónáð hjá Steve Staunton fyrir ári síðan en þá hafði hann logið til um andlát ömmu sinnar sem enn var sprelllifandi.
Giovanni Trapattoni núverandi landsliðsþjálfari hefur hinsvegar opnað dyrnar fyrir honum í landsliðið en Ireland segist ánægður með að vera ekki að spila fyrir liðið sem stendur.
Hann neitar þó útiloka að snúa aftur og Dunne sem er liðsfélagi hans hjá Manchester City segir að málið sé flókið.
,,Ég held að það sé ekki hægt að gera neitt meira," sagði Dunne við Belfast Telegraph. ,,Hann er 22 ára núna og hefur tekið sína ákvörðu, hann vill ekki spila og þannig er það."
,,Það sem stjórinn hefur gert er að segja að dyrnar séu opnar og ef hann vill koma aftur, þá má hann koma aftur. En ég held að þeim lengra sem líður, þeim erfiðara verður það. Ef við komumst á það stig að vera á toppi riðilsins í september á næsta ári og virðumst vera að okmast áfram, er þá rétt að hann snúi aftur?"
,,Ef hann vill ekki spila þá er það bara þannig, það er val hvers og eins en við erum alltaf spurðir um þetta áfram og að svara spurningum fyrir hans hönd í hvert sinn sem við komum verður pirrandi."




