KR-ingurinn Guðmundur Reynir Gunnarsson var í byrjunarliði belgíska úrvalsdeildarliðsins Cercle Brugge sem sigraði hollenska liðið Willem II, 1-0, í æfingaleik á miðvikudaginn.
Guðmundur hefur verið til reynslu hjá Cercle Brugge þessa vikuna en hann mun halda til Noregs á mánudaginn þar sem hann mun dvelja í nokkra daga við æfingar hjá Lilleström ásamt samherja sínum í KR, Guðjóni Baldvinssyni.




