Heimild: Sky
Everton neitar þeim sögusögnum að félagið sé við það að verða selt. Einhverjar fréttir erlendis höfðu gefið það til kynna að samkomulag um sölu væri að nálgast og að stjórnarformaðurinn Bill Kenwright væri í útlöndum í viðræðum við hugsanlegan kaupanda.
„Ólíkt því sem sagt er í fréttum er félagið ekki á mörkum þess að verða selt,“ sagði talsmaður Everton á opinberri heimasíðu félagsins.
Hr. Kenwright eyddi eftirmiðdeginum á skrifstofu sinni í London.“
Kenwright sagði í síðustu viku að hann væri að leitast eftir nýjum fjárfestum til að geta stutt við bakið á David Moyes í leikmannakaupum og að hann myndi jafnvel selja liðið, ef hann teldi sig treysta kaupandanum.
