Heimild: Voetbal.nos.nl
Pétur Pétursson, aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins, mun mæta á fornar slóðir þegar Íslendingar sækja Hollendinga heim í undankeppni HM í kvöld.
Leikurinn fer fram í Rotterdam þar sem Pétur gerði garðinn frægann með Feyenoord undir lok áttunda áratugarins og skoraði ógrynni af mörkum.
Hollenskir fjölmiðlar hafa sýnt Pétri gríðarlegan áhuga í aðdraganda leiksins í kvöld eins og sjá má í myndbrotinu fyrir neðan. Þar má einnig sjá nokkur falleg mörk sem kappinn skoraði fyrir Feyenoord.
Smellið hér til að sjá myndbandið



