Magnús Már Einarsson skrifar frá Rotterdam í Hollandi
Hollenskir stuðningsmenn eru mjög sigurvissir fyrir leikinn gegn Íslendingum í undankeppni HM í dag en liðin mætast klukkan 18:45 í kvöld.
Hollenskir stuðningsmenn hafa verið með upphitun fyrir leikinn á Stadhuis plas í dag og Fótbolti.net kíkti þar við og spurði nokkra stuðningsmenn út í það hvernig leikurinn á eftir að fara í kvöld
Hollendingar vinna 2-0 en staðan í hálfleik verður 1-0. Giovani van Bronckhorst skorar fyrra markið en það er erfitt að segja til um síðara markið. Ég held að það verði van der Vaart fyrst að van Persie spilar ekki.
Hollendingar vinna 2-0 en þetta verður mjög erfitt. Ég held að Ryan Babel og Dirk Kuyt muni skorar mörkin.
Ég held að við munum vinna 3-0 og reikna með að þetta verði auðveldur leikur. Klaas Jan Huntelaar verður á skotskóknum.
Holland vinnur örugglega 5-0. Þetta á eftir að verða auðveldur leikur.
Ég held að við vinnum þennan leik 3-0. Wesley Sneijder skorar ef hann spilar, Huntelaar og Dirk Marcelis mun skora í sínum fyrsta leik, hann er frábær leikmaður.






