Heimild: BBC
Skotland og Noregur gerðu í dag markalaust jafntefli í leik liðanna í undankeppni HM 2010 en liðin eru með Íslendingum í riðli og höfðu bæði mætt Íslendingum í september.
Skotar hefðu líklega átt að fara með sigur af hólmi í leiknum því framherjinn þrítugi Chris Iwelumo misnotaði færi fyrir opnu marki er hann skaut framhjá af þriggja metra færi nokkrum mínútum eftir að hann hafði komið inná sem varamaður.
Norðmenn sköpuðu sér líka góð færi og þeir Björn Helge Riise og John Carew ullu usla í norsku vörninni en Craig Gordon markvörður Sunderland varði vel frá þeim. Carew átti frábæran dag í liði Norðmanna þó honum hafi ekki tekist að skora.
Skotar eru á toppi riðilsins með fjögur stig úr þremur leikjum en þeir höfðu áður fengið þrjú stig á Laugardalsvelli gegn Íslandi. Síðar í dag mætast svo Hollendingar og Íslendingar, klukkan 18:45 í beinni á Stöð 2 Sport.
Skotland:
Gordon, Broadfoot, Weir, Caldwell, Naysmith, Brown, Darren Fletcher, Robson, Morrison, McFadden, Maloney.
Varamenn : McGregor, Alexander, Iwelumo, Boyd, Hartley, Steven Fletcher, Berra.
Noregur:
Knudsen, Hoiland, Waehler, Hangeland, John Arne Riise, Bjorn Helge Riise, Stromstad, Grindheim, Winsnes, Iversen, Carew.
Varamenn: Jarstein, Pedersen, Skjonsberg, Elyounossi, Haestad, Braaten, Haland.



