Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   lau 11. október 2008 17:20
Þórður Már Sigfússon
Heimild: De Telegraaf 
De Telegraaf hefur áhyggjur af fjármálum íslenska landsliðsins
Íslenska landsliðið á æfingu í Hollandi í gær
Íslenska landsliðið á æfingu í Hollandi í gær
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Hollenskir fjölmiðlar virðast hafa meiri áhuga á fjármálakreppunni á Íslandi heldur en landsleiknum sem fer fram milli þjóðanna í undankeppni HM í kvöld.

Dagblaðið De Telegraaf fór meira að segja á stúfanna og athugaði hvort Íslendingar væru borgunarmenn fyrir gistingu á hótelinu sem landsliðið hefur dvalið á síðustu daga.

Til allrar hamingju segir í blaðinu, var búið að greiða fyrir gistingu og uppihald áður en landið varð gjaldþrota.

Þó að ástandið sé slæmt í efnahagsmálum okkar Íslendinga er það full fast að orði kveðið hjá hollenskum fjölmiðlum að fullyrða að landið sé gjaldþrota.
Slapp