Holland 2-0 Ísland:
1-0 Joris Mathijsen ('15)
2-0 Klaas Jan Huntelaar ('65)
Það var þéttsetinn De Kuip leikvangurinn í Rotterdam þegar leikur Íslendinga og Hollendinga fór fram í undankeppni HM 2010. Fjöldi Íslendinga var mættur í stúkuna og mátti sjá glitta í íslenska fánann hér og þar í stúkunni.
Ólafur Jóhannesson stillti Gunnleifi Gunnleifssyni upp á milli stanganna en hann átti góðan leik og var mjög öruggur í sínum aðgerðum. Grétar Rafn Steinsson og Heiðar Helguson voru meiddir og í þeirra stað komu Ragnar Sigurðsson og Veigar Páll Gunnarsson.
Leikurinn hófst frekar rólega, Íslendingar lágu frekar aftarlega á vellinum og leyfðu heimamönnum að láta boltann rúlla á milli sín en þeir reyndu samt sem áður lítið á íslensku vörnina af einhverri alvöru.
Sóknarþungi Hollendinganna fór svo að þyngjast og var þar leikmaður Liverpool, Ryan Babel, fremstur í flokki en hann lék á Ragnar í bakverðinum hvað eftir annað.
Það var svo rétt um stundarfjórðungur liðinn þegar gestgjafarnir brutu ísinn, það var þó ekki mikill meistarabragur af því marki. Boltinn barst út til Rafael van der Vaart á vinstri kantinum sem átti fyrirgjöf og í teignum var Joris Mathijsen sneggstur að átta sig og teygði sig í boltann og stýrði honum inn af stuttu færi en íslensku varnarmennirnir voru of seinir að koma sér fram fyrir Mathijsen.
Íslendingum gekk oft á tíðum illa að halda boltanum innan liðsins og trúin sem var til staðar á móti Noregi kom ekki fram í leik liðsins.
Það sást best þegar Veigar Páll Gunnarsson átti fyrsta skot liðsins að marki á 32. mínútu úr ákjósanlegu færi en hann flýtti sér um of og brást bogalistin en þarna virtist sem strákarnir væru farnir að bíta í skjaldarrendur og fóru að fikra sig framar á völlinn.
Nokkrum mínútum síðar fékk Veigar Páll svo glæsilega sendingu inn fyrir - móttakan hjá Veigari var í sama gæðaflokki en hann náði ekki að koma góðu skoti á markið.
Emil Hallfreðsson fékk svo besta færi íslenska liðsins rétt fyrir hálfleik. Brynjar Björn átti flottan sprett og boltinn barst til Emils vinstra megin í teignum en skot hans dapurt.
Þarna hefði Emil svo sannarlega átt að koma skotinu á markið en það voru gestgjafarnir sem áttu svo seinustu tvö færi hálfleiksins. Fyrst var það Ryan Babel sem átti sneyddi boltann á markið af stuttu færi en Gunnleifur sló boltann virkilega vel yfir. Örskömmu síðar átti Klaas Jan Huntelaar skalla sem sleikti stöngina en fyrirgjöfin kom af vinstri vængnum þar sem flestar sóknir Hollendinga áttu upptök sín.
1-0 í hálfleik fyrir Hollendingum en Ísland hafði átt bestu færin í hálfleiknum og því var súrt að hafa ekki náð að ganga til búningsherbergja með jafnan leik í höndunum. Íslenska liðið átti þónokkuð inni en liðið var of mikið að elta boltann í leiknum og þegar það náði honum mislukkuðust of auðveldar sendingar.
Síðari hálfleikurinn var mun betur leikinn hjá íslenska liðinu og virtist sem Ólafur hafi náð að stappa stálinu í sína menn sem mættu grimmari til leiks. Eitt af betri færum leiksins kom svo á 47. mínútu þegar sending frá Hollending átti að fara á Edwin van der Saar í markinu en fyrir innan var Birkir Már Sævarsson sem kaus að leggja boltann á Eið Smára sem átti dapurt skot en þarna hefði Birkir Már einfaldlega átt að snúa sér við og þá hefði hann verið einn á auðum sjó gegn hinum reynda markverði.
Við gátum einfaldlega sjálfum okkur um kennt að hafa ekki sýnt nægilega mikla yfirvegun í ofantöldum marktækifærum - þau voru betri en gestgjafarnir náðu að skapa sér.
Liðið lék eins og áður segir mun betur í síðari hálfleik, færri sendingar mislukkuðust og boltinn hélst betur innan liðsins en þá kom Theodór Elmar Bjarnason inn fyrir Ragnar Sigurðsson og Birkir Már færði sig niður í hægri bakvörðinn.
Hollendingar sýndu svo að þeir eru heimsklassalið þegar líða fór á leikinn, þeir fóru að gerast ágengari og náðu oft á tíðum skemmtilegum rispum í sókninni. Ein rispan endaði með skoti frá van der Vaart en Gunnleifur sem sá við honum.
Gunnleifur sá þó ekki við honum örskömmu síðar, Rafael van der Vaart virtist handleika boltann og svo senda hann inn fyrir á Klaas Jan Huntelaar sem skoraði annað mark þeirra appelsínugulu með góðu skoti í fjærhornið.
Eftir þetta var róðurinn orðinn ansi erfiður en þrátt fyrir það reyndu strákarnir að klóra í bakkann og helsta tilraunin til þess var aukaspyrna Eiðs Smára utan af velli sem fór í hliðarnetið.
Smám saman fjaraði leikurinn út meðan Íslendingar reyndu að minnka muninn, Eiður Smári fékk fínt færi og einnig átti Emil gott skot en okkur vantaði gæðin til að klára þessi færi.
Tiltölulega sanngjarn sigur hollenska liðsins staðreynd. Þeir eru einfaldlega með lið skipað heimsklassamönnum í öllum stöðum og áttu liðsmenn íslenska liðsins oft í stökustu vandræðum með hraða og leikna leikmenn gestgjafanna.
Það er því ekki óásættanlegt að tapa 2-0 gegn þessu liði sem lék einn besta boltann á Evrópumótinu í sumar en samt sem áður er sorglegt að hafa ekki náð að skora mark því færin voru svo sannarlega til staðar.
Íslenska liðið kemur nú heim og leikur við Makedóníu hér á Laugardalsvelli, miðvikudaginn 15. október kl. 18:00 og er ekki spurning um að fylla völlinn og ná fyrsta sigurleik liðsins í undankeppninni - það þarf að hafa trú á því!
Holland: Van der Sar, Dirk Marc Elis, Andre Ojer, Joris Mathijsen, Giovanni Van Bronchurst, Mark Van Bommel, Dirk Kuyt, Nigel De Jong(Demy de Zeeuw), Klaas Jan Huntelaar, Rafael van der Vaart(Wesley Snejder), Ryan Babel(Ibrahim Afellay).
Ónotaðir varamenn: Jan Kromkamp, Tim de Cler, Orlando Engelaar, Henk Timmer.
Ísland: Gunnleifur Gunnleifsson - Ragnar Sigurðsson(Theodór Elmar Bjarnason, 51. mín), Hermann Hreiðarsson, Kristján Örn Sigurðsson, Indriði Sigurðsson - Birkir Már Sævarsson, Brynjar Björn Gunnarsson(Aron Einar Gunnarsson, 73. mín), Stefán Gíslason, Eiður Smári Guðjohnsen - Emil Hallfreðsson - Veigar Páll Gunnarsson(Arnór Smárason, 87. mín).
Ónotaðir varamenn: Árni Gautur Arason (M), Bjarni Ólafur Eiríksson, Davíð Þór Viðarsson, Pálmi Rafn Pálmason.
Maður leiksins: Kristján Örn Sigurðsson - átti fínan leik í vörninni, var grimmur og fórnaði sér fyrir land og þjóð eins og ævinlega.





