Magnús Már Einarsson skrifar frá Rotterdam í Hollandi
Ryan Babel vinstri kantmaður Hollendinga var ánægður eftir 2-0 sigur liðsins á Íslendingum í undankeppni HM í kvöld.
Hollendingar komust yfir á 15.mínútu þegar að Joris Mathijsen og Klaas Jan Huntelaar bætti öðru marki við um miðjan síðari hálfleikinn.
,,Þetta var miklvægur sigur og það var mikilvægt að krækja í stigin þrjú," sagði Babel við Fótbolta.net að leik loknum.
,,Við reyndum að spila góðan fótbolta og við náðum því í góðan klukkutíma. Þá urðu margir leikmenn þreyttir og sendingarnar voru ekki góðar."
,,Heilt yfir var þetta hins vegar gott og Íslendingar sköpuðu ekki mörg færi," sagði Babel sem bjóst við meiri sóknarþunga frá Íslendingum.
,,Ég bjóst við að þeir myndu sækja meira en þeir eru að sjálfsögðu að spila á útivelli. Í síðari leiknum býst ég við öðruvísi íslensku liði," sagði Babel að lokum við Fótbolta.net.




