Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari Íslands sagði eftir 2-0 tap liðsins gegn Hollandi í undankeppni HM 2010 í kvöld að hann hafi gert sér vonir um að nýta það betur að hollenska liðið er ekki sérstaklega gott þegar þeir hafa ekki boltann og þurfa að verjast. Hann sagði við Fótbolta.net eftir leikinn að heilt yfir hafi þó margt verið fint en úrslitin ekki jákvæð.
,,Mér fannst við ekki byrja leikinn nógu vel að því leytinu til að við lögðum leikinn upp með það að reyna að fá ekki á okkur mark snemma í leiknum. Við fáum svo á okkur mark á 15. mínútu, það var eitthvað sem við vildum ekki að myndi gerast," sagði Ólafur í samtali við Fótbolta.net eftir leikinn.
,,Spilamennskan fram að því og næstu mínútur var ekki nógu góð hjá okkur. Við vorum nánast skíthræddir. Við lágum mikið til baka og þorðum ekki að fara upp völlinn og vorum með lélegar sendingar þegar við áttum möguleika á að búa til sóknarfæri. Það má eiginlega segja að við höfum verið hálf stressaðir eða hræddir. Ég veit ekki hvort það var."
,,Mér fannst við vinna okkur svo ágætlega inn í leikinn og byrja seinni hálfleikinn mjög vel. Svo datt botninn aftur úr þessu hjá okkur. Auðvitað var margt jákvætt líka en úrslitin eru það sem telur í þessu og þau voru ekki eins og við vildum hafa þau."
,,Svo er spurning hvort það eigi að fara til Hollands og gera kröfu á að fá eitt stig, og hvað þá þrjú. Það er stór krafa og mikið lagt á okkur en við töldum okkur eiga ákveðin færi á því vegna þess að Hollendingarnir eru frábærir í fótbolta og mjög góðir þegar þeir hafa boltann."
,,En þeir eru ekkert mjög góðir þegar þeir hafa hann ekki og það er einmitt það sem við vorum að gera okkur vonir um að geta nýtt okkur betur. Við fengum ágætis færi í þessum leik og meira að segja nokkur mjög góð færi, sem gerist ekki oft á móti svona stórþjóð og því síður á útivelli. En því miður fengum við ekkert út úr því."
,,Við vissum að þeir eru góðir í fótbolta og með boltann, en við vissum það líka að þeir eru ekkert sérstaklega góðir þegar þeir hafa ekki boltann. Þeir eru ekkert rosalega góðir að verjast til dæmis. Við náum upp fínum spilaköflum þar sem við héldum boltanum þónokkuð vel og færum á milli vængja. Við vissum að við myndum fá þann möguleika ef við værum nógu klókir og myndum þora því. Heilt yfir var margt fínt í þessu en það eru úrslitin sem telja og þau voru ekki jákvæð."




