Heimild: BBC
Craig Bellamy fyrirliði weilska landsliðsins var ánægður með erfiðan 2-0 sigur liðsins á Liechtenstein í gær.
,,Þetta hefði getað orðið meira sannfærandi, ég misnotaði vítaspyrnu en þegar að við lýtum á þetta þá er þetta nú sigur," sagði Bellamy sem var að leika sinn fyrsta leik í byrjunarliði í næstum ár.
,,Ég þurfti mínar áttatíu mínútur, þetta var eins og fyrsti byrjunarliðsleikurinn minn í nærrum ár. Ég vona að ég komist á gott skrið núna."
Eins og áður segir í fréttinni þá misnotaði Bellamy vítaspyrnu, hann segist ekki vita hver myndi taka spyrnu ef það kæmi að því í næsta leik gegn Þýskalandi.
,,Ef að við fáum víti gegn Þýskalandi veit ég ekki hver tekur það. Ég hef verið heppinn í gegnum ferilinn, það hafa alltaf verið leikmenn sem eru betri vítaskyttur en ég í liðinu."


