Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 12. október 2008 06:00
Davíð Örn Atlason
Heimild: Sky 
Hargreaves og Carrick nálægt fullum bata
Michael Carrick og Owen Hargreaves miðvallarleikmenn Manchester United geta líklega spilað með liðinu um næstu helgi gegn West Bromwich Albion.

Paul Scholes, einnig miðvallarleikmaður félagsins er þó frá þar til í desember vegna hnémeiðsla sem hann hlaut gegn AaB Álaborg í Meistaradeild Evrópu.

Carrick hefur misst af síðustu sex leikjum liðsins eftir að hann fótbrotnaði gegn Liverpool í síðasta mánuði. Hargreaves hefur átt við hnémeiðsli að stríða alveg síðan síðasta sumar.

,,Við búumst við því að Michael (Carrick) verði klár í næstu viku. Hann er nánast byrjaður að æfa á fullu núna," sagði Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri United.

,,Owen (Hargreaves) er mikið betri og hann mun klárlega vera tilbúinn fyrir West Brom leikinn, engin spurning."
Slapp
banner