Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 12. október 2008 09:51
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Vefsíða UEFA 
Kvennalið Vals er fallið úr leik í Evrópukeppninni
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nú er það orðið ljóst að kvennalið Vals er fallið úr leik í Evrópukeppni kvenna þetta árið en það varð endanlega ljóst eftir að sænska liðið Umeå burstaði Alma frá Kazakhstan 6-0 um miðjan dag í gær.

Í gærmorgun hafði Valur tapað 2-3 fyrir Bardolino frá Verona á Ítalíu eftir að hafa tapað fyrsta leik sínum gegn Umeå 5-1.

Því varð liðið að treysta á að Umeå tapaði leiknum gegn Alma í gær og lokaleik sínum gegn Bardolonio en svo fór ekki og þar með ljóst að Valur er úr leik.

Valsstúlkur eiga þó einn leik eftir í milliriðlunum sem er gegn Alma og fer fram á þriðjudaginn. Það lið sem vinnur þann leik mun enda í þriðja sæti í riðlinum en Umeå og Bardolino eru þegar komin áfram í átta liða úrslit.

Slapp
banner
banner
banner