Heimild: AFP
Kevin Kuranyi framherji þýska landsliðsins lét sig hverfa án leyfis í gærkvöldi og var ekki mættur í liðsrútuna eftir leik eins og hann hefði átt að vera. Þjóðverjar unnu Rússa 2-1 í undankeppni HM 2010 í gærkvöld en þessi framherji Schalke 04 var ekki í 18 manna hópi í leiknum og horfði á hann úr stúkunni.
Leikurinn fór fram í Dortmund og þegar liðið hóf ferðalag með liðsrútunni til Dusseldorf þar sem það gistir var Kuranyi ekki mættur og ekki hafði ekki látið ná í sig í morgun þegar reynt var að ná í hann.
Samkvæmt SID fréttastofunni munu tveir vinir hans hafa farið á Hilton hótelið í Dusseldorf til að sækja eigur Kuranyi í gær. Þýska knattspyrnusambandið hefur staðfest fjarveru hans en gat ekki gefið skýringu á henni eða til hvaða aðgerða verði gripið.
Kuranyi sem á að baki 52 landsleiki fyrir Þýskaland horfði á leikinn úr stúkunni ásamt öðrum leikmönnum sem ekki spiluðu en bað svo um leyfi í hálfleik til að skipta um föt til að geta hitt vini sína. Eftir að hafa fengið það samþykki sást hann ekki aftur og mætti ekki í liðsrútuna.
Rúmum klukkutíma eftir að leiknum lauk leituðu starfsmenn þýska knattspyrnusambandsins að honum án árangurs svo liðsrútan fór án hans. Oliver Bierhoff liðsstjóri reyndi nokkrum sinnum að ná í framherjann í síma án árangurs. Þýskaland mætir Wales á miðvikudag í undankeppni HM 2010.




