Heimild: BBC
Þá er komið að daglegum slúðurpakka dagsins sem BBC tók saman úr ensku blöðunum og við birtum hér að neðan í íslenskri þýðingu.
Mark Hughes stjóri Man City mun eyða allt að 100 milljónum punda í janúar og efstir á óskalistanum eru Gianluigi Buffon, Kaka og Fernando Torres. (News of the World)
Wilson Palacios leikmaður Wigan er nú kominn á óskalista Manchester United sem mun greiða 15 milljónir punda fyrir hann. (Sunday Express)
Ólíklegt er að Carlos Tevez verði endanlega í herbúðum Man Utd en félagið hefur eyrnamerkt 20 milljónum punda að fé sínu í að ná í brasilíska miðjumanninn Douglas Costa sem er 18 ára gamall. (News of the Wolrd)
Luka Modric gæti staldrað stutt við hjá Tottenham en Juventus vill fá hann í janúar. (Observer)
Eiður Smári Guðjohnsen telur að Marc Crocas sem Celtic keypti frá Barcelona í sumar muni verða stjarna hjá börsunugm og það sé ástæða þess að þeir hafi sett klásúlu í samning hans um að geta keypt hann aftur. (Sunday Mail)
Wayne Routhledge gæti farið til Wolves frá Aston Villa. (Observer)
Birmingham mun leggja eina milljón punda fram til að næla í Craiic Mackail-Smith frá Peterborough. (Ýmsir miðlar)
Kevin Doyle leikmaður Reading fer til Aston nVilla í janúar. Kaupverðið er 7 milljónir punda. (News of the World)
West Ham hefur nú mánuð til að finna kaupanda en gæti annars endað í greiðslustöðvun. (Ýmsir miðlar)
Joe Kinnear mun halda starfi sínu sem tímabundinn stjóri Newcastle þar til loka tímabilsins. (Mail on Sunday)
Stuðningsmenn Tottenham munu hitta Daniel Levy formann félagsins í vikunni þar sem starf íþróttastjórans Damien Comolli verður rætt. (News of the World)
Tony Jimenez gæti fengið starfið en hann hætti í starfi sínu í leikmannamálum Newcastle í síðustu viku. (Observer)
Robert Pires hefur sagt franska knattspyrnusambandinu að leggja allt í að fá Arsene Wenger stjóra Arsenal til að taka við franska landsliðinu. (Sunday Express)
Ef Sheffield United fær stórar upphæðir frá West Ham útaf Carlos Tevez málinu þá munu þeir nýta peninginn í að greiða upp allar sínar skuldir. (Sunday Telegraph)
Kris Boyd mun neita að spila fyrir Skotland að nýju meðan George Burley er landsliðsþjálfari. (Sunday Mail)



