Heimild: Sky
David Moyes knattspyrnustjóri Everton segir að hann hafi íhugað að hætta starfi sínu fyrir félagið en mikið hefur verið rætt um framtíð hans upp á síðkastið og nýjan samning hans.
Moyes hefur verið við stjórn Everton síðan árið 2002. Hann segir að honum hafi fundist hann hafa verið of lengi hjá félaginu en eftir að hafa heyrt ræðu frá goðsögninni Sir Bobby Robson hafi hann skipt um skoðun.
,,Ég fór í mat um miðjan júlí til heiðurs Bobby Robsons, þetta var að hálfu samtaka knattspyrnustjóra í deildinni honum til heiðurs," sagði Moyes sem er 45 ára gamall.
,,Bobby fór upp og hóf að ræða um tíma sinn í knattspyrnustjórn og sagði að hann hafi verið hjá Ipswich í yfir 12 ár. Svo nefndi hann að Brian Clough hafi verið hjá Forest í 13 ár."
,,Og það fékk mig til að hugsa hversu heppinn ég er að hafa verið hjá Everton í sex og hálft ár á sama tíma ob stjórar eru að fá bara eitt til tvo ár í starfi. Það hafði runnið í gegnum huga minn að það að vera hjá félagi í sex og hálft ár hafi verið langur tími, kannski of langur."
,,En það sem Bobby sagði fékk mig til að skipta algjörlega um skoðun, staðreyndin er að þetta er ekki nógu langt, og ég hef enn verk að vinna. Þetta er draumur og hann veitti mér innblástur með orðum sínum."



