Heimild: BBC
Craig Bellamy fyrirliði welska landsliðsins er óánægður með aðstæður og völlinn á Þúsaldarleikvangnum í Cardiff en þar vann Wales 2-0 sigur á Liechtenstein í undankeppni HM 2010 í gærkvöld.
,,Þetta er ekki besti völlurinn, þetta er rúgbý völlur, þeir hugsa ekkert um okkur hérna," sagði Bellamy við BBC Sport.
,,Á leikjum eins og þessum er ekkert andrúmsloft hérna meðal stuðningsmannana. Með fullri virðingu fyrir þeim 12.500 sem létu sjá sig en þegar leikvangurinn er tómur er lítil stemmning. En þetta er engin afsökun, við vitum að við verðum að gera betur."
Þúsaldarleikvangurinn í Cardiff tekur 72.500 áhorfendur í sæti en leikvangurinn er í eigu welska rúgbýsambandsins. John Toshack stjóri welska liðsins og aðrir leikmenn voru sammála Bellamy í gagnrýninni.
Toshack hafði áður gagnrýnt það fyrir leik gegn Aserbaidjan í síðasta mánuði að yfirborð vallarins hafi verið fjarlægt þegar vika var í leikinn til að halda tónleika Madonnu þar en það truflaði undirbúning liðsins fyrir leikinn.
Toshack hafði beðið um að leikir liðsins yrðu færðir á annan völl áður en undankeppnin hófst til að geta skapað meiri stemmningu á leikjum liðsin. Þá var litið á RAcecourse ground leikvang Wrexham, Ninian Park leikvang Cardiff eða Liberty Stadium leikvang Swansea en einginn þeirra tekur meira en 20 þúsund áhorfendur í sæti.
Knattspyrnusamband Wales mun vera með 25 ára samning um notkun á Þúsaldarleikvangnum en það skyldar þeim þó ekki að spila alla leiki þar.

