Heimild: BBC
Kris Boyd framherji Rangers sagði við BBC í morgun að hann sé hættur að spila fyrir skoska landsliðið meðan það er undir stjórn þjálfarans George Burley. Boyd segist hafa skilið eftir skilaboð þessa efnis til Burley í gærkvöld eftir að þjálfarinn hafði sagt við Radio Scotland að framherjinn þyrfti að sanna sig með félagi sínu.
,,Ég skildi eftir skilaboð á síma George Burley í gærkvöld og hann hefur ekki haft samband til baka," sagði Boyd.
,,Ég mun ekki spila fyrir George Burley aftur, en ég vona að ég snúi aftur í treyju Skotlands aftur einn daginn."
Boyd var í allar 90 mínúturnar í leik Skota gegn Norðmönnum í gærkvöld á bekknum og hafði samband við Burley eftir markalausa jafnteflið í leiknum þegar hann heyrði ummæli hans í útvarpsþættinum.
Í þættinum varði Burley ákvörðun sína að setja Chris Iwelumo inná í stað James McFadden í leiknum á sama tíma og Boyd sat á bekknum. ,,Kris verður að sanna sig í Rangers liðinu, sem hann hefur ekki gert," sagði Burley. ,,Chris (Iwelumo) kom inná því hann hafði verið að spila reglulega og hefur skorað átta mörk í sex leikjum fyrir Wolves."
,,Maður er alltaf að bíða eftir að leikmenn sanni sig, og Boyd er ekkert öðruvísi en aðrir í hópnum."

