Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 12. október 2008 14:08
Davíð Örn Atlason
Heimild: Sky 
Darrent Bent: Gefið Ramos tíma
Darrent Bent leikmaður Tottenham segir að fólk eigi að gefa Juande Ramos knattspyrnustjóra félagsins tíma til þess að snúa við blaðinu. Tottenham eru í síðasta sæti ensku úrvalsdeildarinnar og er þetta versta byrjun þeirra frá árinu 1912.

Skiljanlega er Ramos í ansi heitu sæti eins og er, en Bent segir að hann geti snúið við blaðinu.

,,Ég myndi gjarnan vilja sjá fólk gefa honum tíma. Það eru of margir stjórar í þessu landi sem að eru farnir bara útaf smá vandræðum," sagði Bent.

,,Hann á að fá tækifæri. Hann vann deildarbkarinn síðasta tímabil og er frábær stjóri. Strákarnir og allir hjá félaginu standa við bakið á honum."

,,Við vitum að ef að við spilum vel þá getum við snúið blaðinu við og farið að klifra upp töfluna."
Slapp
banner
banner