Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 12. október 2008 15:25
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Sky 
Terry fær eina æfingu til að sýna fram á að hann sé heill
John Terry mun fá eina æfingu til að sýna fram á að hann hafi náð sér af meiðslum sínum og geti farið með enska landsliðinu til Hvíta Rússlands eftir helgi þar sem liðið leikur í undankeppni HM 2010.

Terry missti af 5-1 sigrinum á Kazakhstan á Wembley í gær vegna meiðsla á baki sem komu upp í leik Chelsea gegn CFR Cluj í Meistaradeild Evrópu.

Enska landsliðið flýgur til Minsk á þriðjudagsmorgun og því þarf Terry að keppa við tímann að koma sér í form til að geta fullvissað Fabio Capello landsliðsþjálfara um að hann sé klár í leikinn.

Rio Ferdinand bar fyrirliðabandið í fjarveru Terry í gær og Matthew Upson lék við hliða hans í byrjunarliðinu. Hann virtist þó eitthvað taugaveiklaður á stundum.

Adrian Bevington fjölmiðlafulltrúi enska knattspyrnusambandsins sagði við Sky að Terry muni æfa með liðsfélögum sínum á morgun, mánudag, og eftir það verði tekin ákvörðun um hvort hann fari út.

,,John vinnur með Gary Lewin sjúkraþjálfara í dag (sunnudag) og hann mun skokka og æfa í ræktinni," sagði Bevington. ,,Á morgun mun hann vonandi æfa með öllum hópnum og þá mun Fabio taka ákvörðun sína, eftir æfingu á morgun."

Slapp
banner
banner