Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 12. október 2008 16:19
Davíð Örn Atlason
Heimild: Sky 
AC Milan segja Kaka ekki til sölu
AC Milan segja að brasilíski snillingurinn Kaka sé ekki til sölu, sama hversu hátt tilboð berst.

Í dagblöðunum í dag er sagt að Manchester Cit ætli að bjóða stóra upphæð í leikmanninn.

Umberto Gandini yfirmaður íþróttamála hjá Milan sagði í viðtali við Sky Sports News að hann yrði alls ekki seldur.

Kaka, sem er núna í Venesúela með brasilíska landsliðinu er samningsbundinn AC Milan til ársins 2013.

Kaka hefur gefið það út áður að hann sé mikill aðdáandi ensku úrvalsdeildarinnar og hann myndi vilja spila þar einhverntímann á ferlinum.
Slapp
banner
banner