Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 12. október 2008 17:08
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Sky 
Henry segir að Man City orðrómurinn verði að hætta
Thierry Henry framherji Barcelona óskaði eftir því í fjölmiðlum í dag að orðrómar þar sem hann er orðaður við Manchester City hætti. Henry hefur enn ekki náð að koma sér í sömu stöðu hjá Barcelona og hann var hjá Arsenal áður en hann skipti milli félaganna sumarið 2007.

Manchester City er komið með endalausa peninga eftir kaup Abu Dhabi United Group á félaginu og er talið ætla að reyna að kaupa Henry í janúar. Frakkinn vill hinsvegar vera áfram hjá Barcelona.

,,Það er eitt á hreinu, Manchester City dæmið og allt þetta sem þið eruð að tala um verður að hætta," sagði Henry við France Football.

,,Ég hef spilað þrjá leiki í deildinni og skorað tvö mörk. Svo þannig er það, ég missti af tveimur leikjum því ég var veikur."

,,Messi hefur tvisvar verið á bekknum, Eto'o hefur verið á bekknum tvisvar og Alves hefur ekki verið í liðinu upp á síðkastið. Þjálfarinn skiptir leikmönnum, en þið hættið ekki þegar komið er að mér. Talið um alla!"

,,Þegar Puyol spilar ekki gegn Betis, þegar Alves er ekki í hópnum, þegar Messi spilaði ekki gegn Santander, þegar Sam spilar ekki gegn Espanyol. Ef þið ætlið að tala, talið þá um alla."

Slapp
banner