Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 12. október 2008 17:26
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Sky 
Endanlega ljóst að Messi verði ekki með gegn Skotum
Nú er orðið endanlega ljós að Lionel Messi leikmaður Barcelona verður ekki með argentíska landsliðinu gegn Skotum í vináttuleik í nóvember en Jose Luis Meizsner ritari argentíska knattspyrnusambandsins staðfesti þetta í dag.

Messi fékk að spila með Argentínu á Ólympíuleikunum í Peking með þeim skilyrðum að hann spilaði ekki neinn vináttulandsleik á tímabilniu.

Skoska knattspyrnusambandið tilkynnti í síðasta mánuði að Argentína kæmi á Hampden Park 19. nóvember næstkomandi og Gordon Smith framkvæmdastjóri skoska sambandsins sagði þá að hann væri vongóður um að Messi yrði með.

Txiki Begiristain íþróttastjóri Barcelona kom til Buenos Aires í nýliðinni viku til að hitta þar starfsmenn argentíska sambandsins og fá það endanlega staðfest að Messi myndi ekki spila.

,,Viðræðurnar voru auðveldar," sagði Meizsner. ,,Barcelona og Argentína hafa bæði áhuga á að vernda líkamlegt ástand stjarna eins og Leo, og þetta er besta lausnin fyrir báða aðila."
Slapp
banner
banner
banner