Agnar Bragi Magnússon skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við Selfoss. Agnar Bragi hefur leikið bæði með u-17 og u-19 ára liði Íslands, hann er uppalinn í Fylki en fékk fá tækifæri þar og fór yfir til Selfoss í fyrra. Hann lek stórt hlutverk í skemmtilegu liði Selfoss sem hafnaði í 3. sæti 1. deildar.
„Ég er gríðarlega ánægður að gera nýjan samning við Selfoss, mér líður mjög vel á Selfossi, öll umgjörð góð og ég hef aldrei upplifað eins mikla stemmningu og mikla samheldni eins og var í hópnum í fyrra," sagði Agnar Bragi við undirskriftina.
,,Ég og nokkrir aðrir ungir leikmenn þroskuðumst ótrúlega mikið á síðustu leiktíð, Zoran og Ómar voru óhræddir að gefa ungu strákunum sjens. Gulli (Gunnlaugur Jónsson þjálfari) á örugglega eftir að kenna mér margt og það er frábært tækifæri að fá að spila við hliðina á þessum reynslubolta."
,,Hann virkar á mig sem góður þjálfari og við munum halda áfram að spila skemmtilegan fótbolta. Ég vona að við höldum öllum okkar leikmönnum og þá vitum við hvað liðið getur gert,“ sagði Agnar Bragi að lokum í léttu spjalli við Fótbolta.net.


