Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 19. desember 2008 18:13
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Setanta 
Torres ekki með Liverpool á sunnudag
Fernando Torres.
Fernando Torres.
Mynd: Getty Images
Nú er orðið pottþétt að spænski framherjinn Fernando Torres verður ekki með Liverpool í leiknum gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni um helgina en í sárabætur verður Rafael Benítez á hliðarlínunni eftir að hafa misst af æfingum vikunnar vegna veikinda.

Benítez fékk nýrnasteina í vikunni og fór í aðgerð vegna þess. Síðan þá hefur hann verið heima hjá sér að jafna sig og Sammy Lee hefur stýrt liðinu á æfingum fyrir leikinn mikilvæga.

Lee staðfesti í dag að Benítez verði með á sunnudag en hafði ekki eins góðar fréttir af Torres.

,,Hann verður ekki klár um helgina, nei," sagði Lee.

,,Hann er byrjaður að æfa og hlaupa. Við erum að reyna að sjá til þess að hann sé góður og 100% þegar hann kemur aftur."
Athugasemdir
banner
banner
banner