Heimild: Sporting Life
Brasilíumaðurinn Elano hjá Manchester City segir að hann sé að íhuga að ganga til liðs við Lazio á Ítalíu. Þessi 27 ára gamli leikmaður vakti lukku þegar hann kom fyrst til Man City frá Shakhtar Donetsk síðasta sumar en hefur ekki fengið mörg tækifæri á þessari leiktíð undir stjórn Mark Hughes.
Hughes er nú talinn vilja selja Elano í janúarglugganum enda ætlar hann sér að kaupa fullt af nýjum mönnum. Elano segist tilbúinn að fara til Lazio.
,,Það væri ekkert vandamál fyrir mér að spila á Ítalíu. Og Lazio er mjög gott lið," sagði Elano við ítalska dagblaðið Corriere dello Sport.
,,Ég get ekki sagt meira, ég verð að tala við Manchester City. Ég mun gera það fljótlega, og taka svo ákvörðun um hvað ég geri."
,,Ég hef heyrt það sagt að Lazio hefði áhuga. Ég er ánægður með að svo stórt félag sé að fylgjast með mér."



