Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   lau 03. janúar 2009 14:59
Magnús Már Einarsson
Enski bikarinn: Hartlepool sló Stoke út
Hartlepool 2 - 0 Stoke
1-0 Michael Nelson ('49)
2-0 David Foley ('76)

Hartlepool sló Stoke úr keppni í þriðju umferð enska bikarsins í dag með 2-0 sigri.

Hartlepool leikur í þriðju efstu deild á Englandi og er þar um miðja deild þannig að úrslitin verða að teljast mjög óvænt.

Fyrri hálfleikurinn var frekar tíðindalítill í dag en í upphafi síðari hálfleiks náði Hartlepool að komast yfir.

Matty Robson sendi þá aukaspyrnu inn á teiginn beint á kollinn á Michael Nelson sem skallaði boltann niður í markhornið við mikinn fögnuð heimamanna.

Í fyrri hálfleik neyddist Hartlepool til að gera tvær breytingar og önnur þeirra átti eftir að skila sér með marki frá varamanninum David Foley.

Foley skoraði annað mark Hartlepool á 76.mínútu með frábæru skoti af 30 metra færi.

Fleiri urðu mörkin ekki og Hartlepool er komið í fjórðu umferð bikarsins á meðan Stoke er fyrsta liðið sem dettur úr leik í dag.

Slapp
banner
banner