Heart of Midlothian FC 0 - 0 Hibernian FC
Hearts og Hibernian gerðu markalaust jafntefli í grannaslagnum í Edinborg í skosku úrvalsdeildinni í dag.
Eggert Gunnþór Jónsson var í byrjunarliði Hearts sem miðvörður en í síðari hálfleiknum lék hann síðan í stöðu vinstri bakvarðar.
Hearts var oft nálægt því að skora í leiknum í dag en liðið átti tvo sláarskot og eitt stangarskot í leiknum.
Inn vildi boltinn hins vegar ekki og lokatölur 0-0 en Hearts er eftir þessi úrslit sem fyrr í fjórða sæti deildarinnar með 32 stig, tveimur stigum á eftir Dundee.




