Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 03. janúar 2009 15:15
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: BBC 
Wayne Bridge til Man City (Staðfest)
Manchester City hefur gengið frá kaupum á Wayne Bridge vinstri bakverði Chelsea en kaupverð hefur ekki verið gefið upp. Þó er talið að það sé 10 milljónir punda en Bridge hefur skrifað undir fjögurra og hálfs árs samning við City.

,,Hann hefur réttu gæðin og hann er svona leikmaður eins og við þurfum að fá til félagsins," sagði Mark Hughes stjóri liðsins.

Bridge verður væntanlega fyrsti af mörgum kaupum Hughes í janúarglugganum. Hann hafði komið til Chelsea frá Southampton á 7 milljónir punda í júlíu árið 2003 og gerði nýjan fjögurra ár asamning í júlí 2008.

Hann fékk hinsvegar fá tækifæri hjá Luiz Felipe Scolari og er nú farinn frá félaginu.

,,Hann er leikmaður sem ég þekkti þegar ég var hjá Southampton og hann var að koma upp hjá félaginu," hélt Hughes áfram. ,,Hann var framúrskarandi og bætti sig frá ári til árs."

Bridge lék 142 leiki fyrir Chelsea á fimm ára tímabili og hefur leikið 32 landsleiki fyrir England.
Slapp
banner