Strákarnir hjá Guðjóni Þórðarsyni í Crewe með jafntefli
Fjölmargir leikir hófust á slaginu þrjú í enska bikarnum í dag en um var að ræða stóran hluta af þriðju umferð keppninnar. Að venju bauð þessi fornfræga bikarkeppni upp á nóg af mörkum og dramatík. Við skulum líta á úrslit dagsins það sem af er og sjá einnig hvernig íslensku leikmönnunum gekk.
Manchester City eru úr leik eftir hörmulega frammistöðu gegn baráttuglöðum leikmönnum Nottingham Forest og þá náðu Southend að krækja í jafntefli á Stamford Bridge á móti Chelsea. Arsenal lögðu Plymouth 3-1 að velli á Emirates þar sem Robin van Persie skoraði tvívegis.
Grétar Rafn Steinsson og félagar í Bolton eru úr leik eftir tap gegn Sunderland, WBA og Portsmouth gerðu jafntefli við lið úr neðri deildum og þurfa annan leik sem og Hull og Newcastle sem gerðu markalaust jafntefli.
Guðjón Þórðarson nýráðinn stjóri hjá Crewe Alexandra fór með sína menn til Lundúna þar sem þeir gerðu 2-2 jafntefli gegn Millwall í fyrsta leik hins litríka karakters við stjórnvölinn.
Arsenal 3-1 Plymouth
1-0 Van Persie ('47)
2-0 Gray (sjálfsmark) ('50)
2-1 Duguid ('53)
3-1 Van Persie ('85)
Cardiff 2-0 Reading
1-0 McCormack ('57)
2-0 Ledley ('83)
Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á sem varamaður á 78.mínútu en Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson voru ekki í leikmannahópi Reading.
Charlton 1-1 Norwich
1-0 Shelvey ('20)
1-1 Lupoli ('71)
Chelsea 1-1 Southend
1-0 Kalou ('31)
1-1 Clarke ('90+)
Coventry 2-0 Kidderminster
1-0 McKenzie ('52)
2-0 Best ('82)
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn með Coventry.
Forest Green 3-4 Derby
1-0 Smith ('14)
2-0 Lawless ('20)
2-1 Hulse ('40)
2-2 Albrechtsen ('45+)
3-2 Stonehouse ('72)
3-3 Green ('76)
3-4 Davies (Víti) ('87)
Rautt spjald: Lawless ('86)
Hartlepool 2-0 Stoke
1-0 Nelson ('49)
2-0 Foley ('76)
Hull 0-0 Newcastle
Ipswich 3-0 Chesterfield
1-0 Walters (Víti) ('50)
2-0 Counago ('53)
3-0 Stead ('88)
Kettering 2-1 Eastwood Town
1-0 Westcarr ('24)
2-0 Seddon ('58)
2-1 Robinson ('60)
Leicester 0-0 Crystal Palace
Macclesfield 0-1 Everton
0-1 Osman ('43)
Man City 0-3 Nottingham Forest
0-1 Tyson ('38)
0-2 Earnshaw ('42)
0-3 Garner ('75)
Middlesbrough 2-1 Barrow
1-0 Alves ('23)
2-0 Alves ('62)
2-1 Walker ('80)
Millwall 2-2 Crewe
0-1 Lawrence ('12)
1-1 Laird ('40)
2-1 Frampton ('45+2)
2-2 Shelley ('58)
Þetta var fyrsti leikur Guðjóns Þórðarsonar sem stjóri Crewe
Portsmouth 0-0 Bristol City
Hermann Hreiðarsson kom ekki við sögu hjá Portsmouth.
QPR 0-0 Burnley
Jóhannes Karl Guðjónsson lék allan leikinn með Burnley en Heiðar Helguson var ekki í leikmannahópi QPR.
Sheff Wed 1-2 Fulham
0-1 Johnson ('12)
1-1 Spurr ('21)
1-2 Johnson ('88)
Sunderland 2-1 Bolton
1-0 Jones ('57)
2-0 Cisse ('67(
2-1 Smolarek ('79)
Grétar Rafn Steinsson lék allan leikinn með Bolton og nældi sér í gult spjald.
Torquay 1-0 Blackpool
1-0 Green ('32)
Watford 1-0 Scunthorpe
1-0 Rasiak ('67)
West Brom 1-1 Peterborough
1-0 Olsson ('64)
1-1 Mackail-Smith ('87)
West Ham 3-0 Barnsley
1-0 Ilunga ('10)
2-0 Noble (Víti) ('39)
3-0 Cole ('68)
Leikur Preston og Liverpool hefst 17:25.

