Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 03. janúar 2009 18:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: Heimasíða Crewe 
Guðjón: Ánægður með hvernig leikmennirnir komu til baka
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Guðjón Þórðarson var ánægður með leikmenn Crewe Alexandra í 2-2 jafnteflinu gegn Millwall í enska bikarnum í dag.

Millwall komst í 2-1 en Danny Shelley jafnaði með góðu skoti og liðin munu því mætast aftur til að fá úr því skorið hvort þeirra fer áfram í fjórðu umferðina.

,,Ég er ánægður með það hvernig leikmennirnir komu til baka í síðari hálfleik og þetta eru góð úrslit því eftir að við komumst í 1-0 þá lentum við fljótt 2-1 undir rétt fyrir leikhlé," sagði Guðjón.

,,Ég vil hrósa leikmönnunum því að þeir komu mjög vel til baka og sýndu frábæran anda og baráttu."

,,Markvörðurinn okkar hefði getað gert betur í báðum mörkunum en þetta eru mistök og þú verður að komast yfir þau og halda áfram. Hann gerði það."
Slapp
banner
banner