Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona sem mætir Mallorca á heimavelli eftir jólafrí nú klukkan 19:00.
Spænskir fjölmiðlar töldu fyrir leikinn að Eiður myndi verða á bekknum en annað kom á daginn.
Nokkrir leikmenn Barcelona skiluðu sér ekki á tíma eftir jólafrí en það mátti rekja til verkfalla hjá flugfélögum.
Byrjunarlið Barcelona: Valdez, Sanches, Marquez, Puyol, Abidal, Toure, Xavi, Eiður Smári, Henry, Eto´o, Hleb..




