Fernando Torres kom inn á sem varamaður og skoraði
Preston North End 0 - 2 Liverpool
0-1 Alberto Riera ('25)
0-2 Fernando Torres ('90)
0-1 Alberto Riera ('25)
0-2 Fernando Torres ('90)
Lokaleik dagsins í 3. umferð ensku bikarkeppninnar var að ljúka rétt í þessu en það var viðureign Preston North End og Liverpool.
Drengirnir frá Bítlaborginni og topplið ensku úrvalsdeildarinnar hafði betur með tveimur mörkum gegn engu eftir hetjulega baráttu frá leikmönnum, Preston North End.
Alberto Riera skoraði fyrra mark Liverpool um miðjan fyrri hálfleik eftir laglegan einleik og firnafast vinstri fótarskot sem Andy Lonergan markvörður Preston réð ekki við.
Robbie Keane fékk skömmu síðar tvö prýðisgóð tækifæri til að koma Liverpool í tveggja marka forystu en kappanum brást bogalistinn í bæði skiptin.
Spánverjinn, Xabi Alonso þurfti að yfirgefa völlinn í leikhléi vegna meiðsla og hinn brasilíski Lucas Leiva leysti hann af hólmi í síðari hálfleiknum.
Heimamenn í Preston töldu sig hafa jafnað metin á 64. mínútu en góður dómari leiksins Martin Atkinson dæmdi augljóst brot á Jon Parkin framherja Preston sem hafði togað í Jamie Carragher.
Fernando Torres innsiglaði sigur Liverpool á loka andartökum leiksins en kappinn kom inná sem varamaður fyrir Robbie Keane þegar um tuttugu mínútur lifðu eftir af leiknum.
Tveir síðustu leikirnir í 3. umferð bikarkeppninnar fara fram á morgun. Gillingham tekur þá á móti Aston Villa en í hinum leiknum fá leikmenn Southampton, Englandsmeistara, Manchester United í heimsókn.





