Átta leikir fara fram í spænska boltanum í dag en sex leikir hefjast klukkan 16:00.
Þar á meðal er leikur Real Madrid og Villareal en þessi lið eru í fimmta og sjötta sæti deildarinnar.
Sevilla, sem er einnig í toppbaráttunni, mætir Osasuna klukkan 18:00 og Getafe og Deportivo la Coruna eigast við tveimur tímum síðar.
Leikir dagsins:
Real Madrid - Villareal 16:00
Recreativo Huelva- Numancia 16:00
Real Valladolid - Racing Santander 16:00
Málaga - Sporting 16:00
Almería - Real Betis 16:00
Athletic Bilbao - Espanyol 16:00
Sevilla - Osasuna 18:00
Getafe - Deportivo La Coruna 20:00




