Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 04. janúar 2009 06:00
Magnús Már Einarsson
Æfingaleikir: Höttur og Leiknir F. á sigurbraut
Jónatan Logi Birgisson skoraði fyrir Hött gegn Fjarðabyggð í gær.
Jónatan Logi Birgisson skoraði fyrir Hött gegn Fjarðabyggð í gær.
Mynd: Agl.is - Gunnar Gunnarsson
Tveir æfingaleikir fóru fram í Fjarðabyggðarhöllinni í gær. Höttur lagði Fjarðabyggð 4-2 þar sem Jóhann Clausen, Jónatan Logi Birgisson, Vilmar Freyr Sævarsson og Högni Helgason skoruðu mörkin.

Leiknir Fáskrúðsfirði sigraði Huginn örugglega 3-0 þar sem Hilmar Bjartþórsson 16 ára skoraði tvívegisog Tadas Jocys, 14 ára, skoraði einu sinni.

Leiknismenn unnu einnig Sindra 4-3 í æfingaleik á milli jóla og nýárs en sá leikur fór líka fram í Fjarðabyggðarhöllinni.

Höttur 4 - 2 Fjarðabyggð
Mörk Hattar: Jóhann Clausen, Jónatan Logi Birgisson, Vilmar Freyr Sævarsson og Högni Helgason.

Leiknir F. 3 - 0 Huginn
1-0 Hilmar Bjartþórsson
2-0 Hilmar Bjartþórsson
3-0 Tadas Jocys

Leiknir F. 4 -3 Sindri
Mörk Leiknis: Egill Steingrímsson 2, Almar Daði Jónsson, Svanur Freyr Árnason.

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected].
Slapp
banner
banner
banner