Alls voru sex íslenskir leikmenn í eldlínunni um helgina og þar af voru fimm í byrjunarliðunum. Nokkrir leikmenn eru enn í vetrarfríi.
Sá leikmaður sem þótti standa sig best er án nokkurs vafa Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður Hearts í Skotlandi, en hann átti sannkallaðan stórleik í vörninni þegar liðið gerði markalaust jafntefli gegn Hibernian í Edinborgarslagnum á laugardaginn.
Breskir fjölmiðlar lofa frammistöðu hans í leiknum og er hann valinn maður leiksins í flestum fjölmiðlum þar á slóðum.
Sá leikmaður sem þótti standa sig best er án nokkurs vafa Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður Hearts í Skotlandi, en hann átti sannkallaðan stórleik í vörninni þegar liðið gerði markalaust jafntefli gegn Hibernian í Edinborgarslagnum á laugardaginn.
Breskir fjölmiðlar lofa frammistöðu hans í leiknum og er hann valinn maður leiksins í flestum fjölmiðlum þar á slóðum.
Belgía
Úrvalsdeild
Arnar Þór Viðarsson, Cercle Brugge
Næsta umferð belgísku úrvalsdeildarinnar verður leikinn um miðjan janúar.
Búlgaría
Úrvalsdeild
Garðar Bergmann Gunnlaugsson, CSKA Sofia
Búlgarska úrvalsdeildin er kominn í þriggja mánaða vetrarfrí.
England
Úrvalsdeild
Grétar Rafn Steinsson, Bolton
Grétar var að vanda í byrjunarliði Bolton og spilaði allan leikinn þegar Bolton tapaði fyrir Sunderland, 1-2, á útivelli í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar þar sem hann fékk að líta gula spjaldið í síðari hálfleik.
Staðarblaðið Manchester Evening News gefur Grétari 6/10 í einkunn fyrir frammistöðuna í leiknum en þess má geta að sjö aðrir byrjunarliðsmenn Bolton fá þá einkunn. Hæsta einkunnin sem blaðið gefur leikmanni Bolton er 7/10.
Slúðurblaðið The Sun gefur Grétari 5/10 í einkunn en til marks um það hversu slakir leikmenn Bolton þóttu að mati blaðsins, fékk enginn byrjunarliðsmaður hærri einkunn en 6.
Sömu sögu má segja þegar einkunnargjafir Daily Mail og The People eru skoðaðar. Þar fær Grétar einnig 5/10 í einkunn líkt og flestir aðrir leikmenn Bolton sem gefur til kynna hverslu slakt Bolton liðið var í leiknum.
Hermann Hreiðarsson, Portsmouth
Var sem fyrr á varamannabekknum hjá Portsmouth og kom ekkert við sögu þegar liðið gerði einungis markalaust jafntefli gegn Bristol City á heimavelli í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar.
Staðan í ensku úrvalsdeildinni
1. deild (Championship)
Jóhannes Karl Guðjónsson, Burnley
Spilaði allan leikinn þegar Burnley gerði markalaust jafntefli gegn QPR í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar.
Aron Einar Gunnarsson, Coventry City
Var að vanda í byrjunarliði Coventry og spilaði allan leikinn þegar liðið bar 2-0 sigurorð af Kidderminster í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar.
Hann fær 6/10 í einkunnargjöf The People fyrir frammistöðuna í leiknum líkt og sjö aðrir í byrjunarliði Coventry. Leon Best, framherji Coventry, þótti besti maður vallarins með einkunnina 7/10.
Heiðar Helguson, QPR
Var ekki i í leikmannahópi QPR þegar liðið gerði markalaust jafntefli gegn Burnley í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar.
Brynjar Björn Gunnarsson, Reading
Var ekki í leikmannahópi Reading þegar liðið tapaði 0-2 gegn Cardiff í ensku bikarkeppninni.
Gylfi Sigurðsson, Reading
Kom inn á sem varamaður á 78. mínútu í tapleiknum gegn Cardiff en náði ekki að setja mark sitt á leikinn.
Ívar Ingimarsson, Reading
Var ekki í leikmannahópi Reading í tapleiknum gegn Cardiff.
Staðan í ensku 1. deildinni
Frakkland
Úrvalsdeild
Veigar Páll Gunnarsson, Nancy
Veigar hefur ekki enn hafið æfngar með Nancy en hann verður löglegur með liðinu 1. janúar.
Staðan í frönsku úrvalsdeildinni
Holland
Úrvalsdeild
Arnór Smárason, Heerenveen
Næsta umferð hollensku úrvalsdeildarinnar verð spiluð helgina 17. - 18. janúar. Þá mætir Heerenveen stórliðinu Feyenoord á heimavelli.
Bjarni Þór Viðarsson, FC Twente
Næsta umferð hollensku úrvalsdeildarinnar verð spiluð helgina 17. - 18. janúar
Staðan í hollensku úrvalsdeildinni
Ítalía
Úrvalsdeild
Emil Hallfreðsson, Reggina
Næsta umferð í ítölsku úrvalsdeildinni verður leikinn helgina 10-11. Janúar.
Staðan í ítölsku úrvalsdeildinni
Skotland
Úrvalsdeild
Eggert Gunnþór Jónsson, Hearts
Eggert spilaði allan leikinn þegar Hearts og Hibernian gerðu markalaust jafntefli í nágrannaslagnum í Edinborg á laugardaginn. Eggert spilaði sem miðvörður í fyrri hálfleiknum en þann síðari var hann færður í vinstri bakvörðinn og þótti hann spila óaðfinnanlega í báðum stöðum.
Íslenski landsliðsmaðurinn þótti besti maður vallarins af sérfræðingum Setanta Sports með einkunnina 8.5/10. Opinber heimasíða Hearts valdi Eggert einnig sem mann leiksins.
Í umfjöllun Setanta Sports um leikinn segir m.a.: ,,Skyndisóknir Hibernian voru hættulegar en frábær varnarleikur þeirra Christophe Berra (fyrirliða Hearts) og Eggerts hélt sóknarmönnum þeirra í skefjum."
Skoska dagblaðið The Scotsman velur Eggert einnig sem mann leiksins þar sem segir í umsögninni að hann hafi verið framúrskarandi í vörninni, bæði sem miðvörður og vinstri bakvörður. Þarna sé á ferðinni gríðarlega fjölhæfur leikmaður.
Í einkunnargjöf The Times fær Eggert 7/10 sem er hæsta einkunnin sem gefin er leikmanni Hearts þar á bæ.
Eggert fær einnig góða dóma í umfjöllun Scottish Sun fyrir frammistöðuna í leiknum þar sem segir m.a.: ,,Christophe Berra og Eggert Jónsson voru hreint út sagt frábærir í leiknum."
Í umfjöllun Daily Record um leikinn er Eggerti hampað sem frábærum leikmanni: ,,Varnarleikur Hearts var traustur og þó svo að Christophe Berra sé skiljanlega undir smásjá annarra liða má ekki gleyma Eggerti. Önnur lið eru farin að líta hýru auga til hans eftir frábæra leiki að undanförnu, bæði á miðjunni og í vörninni."
Laszlo Csaba, þjálfari Hearts, grínaðist í viðtali við sama blað eftir leikinn að ekki væri langt þangað til að Eggert yrði settur í sóknina. Blaðamaður Daily Record sagði að íslenski landsliðsmaðurinn myndi að öllum líkindum valda þeirri stöðu einnig vandkvæðalaust.
Þá segir í umfjöllun Sunday Herald um leikinn að hefði Eggerts ekki notið við hefði Hearts vafalaust fengið á sig að minnsta kosti eitt mark í leiknum. ,,Þegar Derek Riordan (framherji Hibernian) komst í ákjósanlegt marktækifæri, einn á móti markmanni, virtist sem ekkert gæti komið í veg fyrir að hann myndi skora. Hins vegar var Eggert á öðru máli og hreif hann boltann af honum með frábærri tæklingu," segir í umfjöllun blaðsins.
Staðan í skosku úrvalsdeildinni
Spánn
Úrvalsdeild
Eiður Smári Guðjohnsen, Barcelona
Eiður spilaði allan leikinn þegar Barcelona sigraði Real Mallorca 3-1 á heimavelli á laugardaginn. Hann var nálægt því að skora undir lok fyrri hálfleiks þegar skot hans hafnaði í þverslánni. Hann lagði síðan upp annað mark Barcelona fyrir Andrés Iniesta.
Netmiðilinn, Goal.com gefur Eiði 7/10 í einkunn fyrir frammistöðuna í leiknum. Í umsögninni segir: ,,Gerði ekkert tilkomumikið og missti boltann í fáein skipti."
Í einkunnargjöf spænska dagblaðsins Diario Sport fær Eiður einnig 7/10 og segir í umsögninni að hann hafi sinnt hlutverki sínu vel, bæði varnarlega og sóknarlega.
Staðan í spænsku úrvalsdeildinni


