Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 03. janúar 2009 21:11
Andri Fannar Stefánsson
Spánn: Eiður lagði upp er Barcelona jók forystuna
Barcelona 3 - 1 Mallorca
0-1 Aduriz ('15)
1-1 Henry ('32)
2-1 Iniesta ('76)
3-1 Yaya Toure ('90+2)
Rautt spjald: Josemi ('90)

Fyrri leik kvöldsins í efstu deild á Spáni er lokið með 3-1 sigri Barcelona á Mallorca en Eiður Smári Guðjohnsen lék allan leikinn í liði Börsunga.

Það voru samt sem áður gestirnir sem komust yfir gegn toppliðinu þegar Aritz Aduriz vippaði yfir Victor Valdes í marki Barcelona. Skömmu síðar átti Eiður Smári gott skot sem fór rétt yfir.

Skömmu síðar jafnaði Thierry Henry 1-1 og þannig var staðan í leikhléi á Nou Camp.

Á 76.mínútu féll skot frá Xavi fyrir fætur Eiðs Smára, hann var óeigingjarn og lagði boltann á varamanninn Andres Iniesta sem kom Börsungum yfir.

Josemi fékk að líta rauða spjaldið á 90.mínútu og Börsungar innsigluðu síðan sigur sinn í viðbótartíma þegar að Yaya Toure fór framhjá tveimur varnarmönnum og skoraði.

Barcelona er eftir leikinn með þrettán stiga forskot á toppi deildarinnar en það mun þó eitthvað minnka síðar í kvöld því nú eigast við Valencia og Atletico Madrid sem eru með jafnmörg stig í öðru og þriðja sæti.
Slapp
banner
banner