Valencia 3 - 1 Atlético Madrid
1-0 D. Villa ('33, víti)
2-0 D. Silva ('39)
2-1 D. Forlán ('45, víti)
3-1 D. Silva ('68)
1-0 D. Villa ('33, víti)
2-0 D. Silva ('39)
2-1 D. Forlán ('45, víti)
3-1 D. Silva ('68)
Valencia tóku á móti Atletico Madrid á Mestalla leikvanginum í kvöld. Heimamenn fóru með 3-1 sigur af hólmi þar sem að David Silva skoraði tvö mörk.
David Villa kom Valencia yfir úr vítaspyrnu þegar að rúmur hálftími var liðinn af leiknum. Nafni hans Silva skoraði síðan annað mark stutu síðar.
Rétt fyrir hálfleik minnkaði Diego Forlan muninn úr vítaspyrnu fyrir Atletico Madrid og staðan því 2-1 fyrir Valencia í hálfleik.
Silva skoraði síðan síðasta mark leiksins þegar að rúmar tuttugu mínútur voru eftir af leiknum.



