Heimild: Foxsports
Carlo Ancelotti knattspyrnustjóri AC Milan fullyrti það í gær að David Beckham myndi spila æfingaleik með liðinu í næstu viku gegn Hamurg í Dubai.
Hann mun kannski spila í ítölsku deildinni gegn Roma þann 11. janúar næstkomandi. Beckham er á láni hjá félaginu frá Los Angeles Galaxy.
,,Honum skortir örlítinn styrk, en það er nú eðlilegt eftir svona langt frí. Hann mun spila í æfingaleiknum gegn Hamburg," sagði Ancelotti.
,,Mun hann spila í Róm? Hann er tilbúinn til þess, svo af hverju ætti hann ekki að spila leikinn?"
Beckham hafði áður sagt að draumur hans væri að spila fyrir topplið á Ítalíu og hann er nú að gera það til þess að halda sér í formi á meðan að deildin í Ameríku er ekki í gangi. Fabio Capello landsliðsþjálfari Englendinga velur aðeins þá leikmenn sem að eru að spila með félagsliðum og því þurfti Beckham að skipta um lið ef hann ætlaði sér að vera í landsliðinu.



