Heimild: BBC
Luiz Felipe Scolari stjóri Chelsea var ekki sáttur eftir 1-1 jafnteflið gegn Southend í enska bikarnum í gær en hann vill að leikmenn sínir fari að nýta færin betur.
Salomon Kalou kom Chelsea í 1-0 í leiknum í gær og liðið fékk nokkur fín tækifæri til að auka forskot sitt. Það tókst hins vegar ekki og Southend náði að jafna undir lokin og knýja fram annan leik.
,,Ég þarf að kenna leikmönnum mínum að vera einbeittari þegar þeir eru fyrir framan markið," sagði Scolari eftir leikinn í gær.
,,Kannski er þetta sjálfstraustið þegar að þeir koma upp að markinu. Þeir þurfa að skora meira og fá meira sjálfstraust."
,,Við lékum vel og sköpuðum 15 færi en náðum bara að skora eitt mark," sagði Scolari ekki sáttur.




