Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 04. janúar 2009 09:34
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Sky 
Kinnear útilokar að Given fái að fara frá Newcastle
Joe Kinnear knattspyrnustjóri Newcastle útilokar að markvörðurinn Shay Given fái að fara frá félaginu en írski markvörðurinn hefur verið sterklega orðaður frá félaginu og sagði í gegnum Michael Kennedy umboðsmann sinn í fyrradag að hann vildi leita á önnur mið.

,,Ég er ekki viss um staðreyndirnar sem hann sragði eða hvernig það var túlkað, en ég vil benda á að Shay er samningsbundinn til 2011," sagði Kinnear.

,,Hann er okkar leikmaður og verður okkar leikmaður, það er svo einfalt."

,,Við höfum engan áhuga á að selja hann. Ég vil að það sé skýrt, þetta verður líklega í síðasta sinn sem ég ræði þetta. Hann er hér, hann er okkar leikmaður og hann verður það áfram."

,,Hann er mikilvægur hluti liðsins, hann er langbesti markvörrður deildarinnar, svo afhverju ættum við að setja möguleika okkar í hættu í okkar stöðu? Það væri ekki eðlilegt að mínu mati, hann verður áfram okkar leikmaður."


Slapp
banner
banner