Heimild: Sporting Life
Tony Adams knattspyrnustjóri Portsmouth segir að hann muni eiga lokaorðið um hvort Jermain Defoe fari frá félaginu eða ekki en er þó tilbúinn að selja ef rétt upphæð verður boðin.
Defoe hafði verið veikur í vikunni og var ekki með liðinu í bikarnum gegn Bristol City í gær en félagið sendi lækni heim til hans til að sjá stöðuna á honum. Hann er á óskalista Aston Villa, Manchester City og Tottenham og hefur óskað eftir sölu frá félaginu.
,,Jermain líður ekki mjög vel, og læknir heimsækir hann til að sjá stöðuna. Peter Storrie (framkvæmdastjóri) fundaði með honum á miðvikudag, og ég var viðstaddur, og Jermain óskaði eftir að fá að fara," sagði Tony Adams.
,,Ég tel að Peter sér að ræða við nokkur félög um hann en lokaákvörðunin verður mín og ég hef upphæð í huga sem ég tel að hann sé verður. Hann er frábær leikmaður og markaskorari en ég hef ekki enn tekið ákvörðun um hvort ég selji hann."


