Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 04. janúar 2009 10:03
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Sporting Life 
Van Bommel óánægður með tilboð Bayern
Bommel í baráttu við Eið Smára í landsleik Hollands og Íslands í haust.
Bommel í baráttu við Eið Smára í landsleik Hollands og Íslands í haust.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mark von Bommel mun hafna samningstilboði Bayern Munchen en núverandi samningur hans við félagið rennur út í júní. Bayern bauð honum svo eins árs framlengingu rétt fyrir jól en hann vill fá lengri samning.

,,Ég myndi vilja vera áfram, en eitt ár er ekki langt fyrir mann sem verður bráðlega 32 ára," sagði hann.

,,Þess vegna er ég óánægður með tilboðið."

,,Ég hef beðið um tíma fram í enda janúar til að íhuga málið og mun nú nota allan þann tíma."

,,Ég er þegar að skoða einn möguleika sem ég get ekki sagt frá ennþá."


Van Bommel staðfesti að hann hafi ekki fengið nein tilboð nema frá Bayern, en með því að taka sér tíma fram í enda mánaðarins býst hann við að önnur félög sjái að hann sé á lausu.

,,Ekkert félag veit að ég er á lausu ennþá," sagði hann vil Bild am Sonntag. ,,En þegar það verður opinbert, þá er ég viss um að önnur félög munu hafa samband."
Slapp
banner