Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 04. janúar 2009 10:08
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: AFP 
Sammy Lee: Gerrard er fyrirmyndar atvinnumaður
Sammy Lee aðstoðarstjóri Liverpool var hæstánægður með fyrirliðann Steven Gerrard í 0-2 sigri á Preston í enska bikarnum, FA Cup, í gær og hrósaði honum í hástert. Gerrard hafði rétt fyrir áramót verið handtekinn og ákærður fyrir líkamsárás en stóð sig vel í gær.

,,Steven er topp atvinnumaður og sýndi frábæra frammistöðu þarna úti," sagði Lee eftir leikinn. ,,Hann er fyrirmyndar atvinnumaður og hefur fullan stuðning okkar."

Undir lok leiksins skoraði Liverpool annað mark sitt. Gerrard var þá kominn einn gegn markverði en beið eftir að Fernando Torres kæmi sér við hlið og sendi þá á hann og gaf honum markið.

,,Þetta fótboltafélag snýst ekki um einstaklinga, en sendingin hans í lokin endurspeglaði liðsandann í liðinu. Hann hefur verið frábær þjónn félagsins og er frábær nánungi."
Slapp
banner