Heimild: BBC
Jermain Defoe, framherji Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni hefur orðið undafarna daga fyrir slæmum símahótunum frá stuðningsmönnum liðsins í kjölfar þess að hann lýsti yfir áhuga sínum á að yfirgefa félagið.
Defoe, sem er 26 ára gamall er líklega á leið frá Portsmouth og er líklegt að hann muni fara til Manchester City, Tottenham eða Juventus, en hann kom til félagsins á síðasta degi janúargluggans fyrir ári frá Tottenham.
Hann lenti í þeirri leiðinlegri reynslu að fá símtalshótanir frá stuðningsmönnum liðsins og lýsti leikmaðurinn því eins og hann væri að fá magaveiru.
,,Ég hreinlega veit ekki hvernig þeir náðu að grafa upp símanúmerið mitt, en sum símtölin sem ég hef fengið láta mig fá í magann," sagði Defoe.
,,Ég get ekki trúað því að þetta komi frá fólki sem er með geðheilsuna í lagi," sagði hann enn fremur.
,, Ég hef sagt félaginu frá þessu. Þetta var óþægilegt og kom fjölskyldu minni í uppnám sem varð til þess að ég fór að pæla hvað fengi fólk til að gera svona hluti," sagði Defoe að lokum.



