Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 04. janúar 2009 12:16
Hafliði Breiðfjörð
Liverpool bíður frétta af meiðslum Alonso - 7 spor saumuð í fótinn
Liverpool bíður nú frétta af því hversu alvarleg meiðsli miðjumannsins Xabi Alonso eru en hann þurfti að fara af velli í hálfleik gegn Preston í bikarnum í gær og í kjölfarið þurfti að sauma sjö spor í fótinn.

,,Við vitum ekki hversu alvarleg meiðslin eru fyrir utan það að hann verður mjög aumur," sagði Sammy Lee aðstoðarstjóri Liverpool.

,,Vonandi verður enginn skaði en við vitum það ekki fyrr en eftir einn eða tvo sólarhringa."

Alonso sem er 27 ára gamall spænskur landsliðsmaður lenti í meiðslunum þegar skot tilraun hans var varin af varnarmönnum Preston eftir að Robbie Keane hafði lagt boltann til hans frá vítateigslínunni.

Hann fékk svo aðhlynningu þegar leikmenn liðanna gengu af velli í hálfleik en mætti svo ekki á völlinn í síðari hálfleik Lucas Leiva tók stöðu hans.

Næsti leikur Liverpool er gegn Stoke City í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn og svo gegn Everton 19. janúar. Þeir mæta svo Chelsea 1. febrúar.

Slapp
banner
banner
banner