Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 04. janúar 2009 12:21
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: AFP 
Bayern Munchen vill fá 10 milljónir evra fyrir Podolski
Þýska félagið Bayern Munchen tilkynnti í dag að landsliðsframherjinn Lukas Podolski sé til sölu en kosti að minnsta kosti 10 milljónir evra. Podolski hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Bayern síðan hann kom frá Köln árið 2006.

Hann hefur verið orðaður við nokkur félög annarsstaðar í Evrópu auk þe ss sem Köln vill kaupa hann til baka á 7,5 milljónir punda. Uli Höness framkvæmdastjóri Bayern segir það ekki duga.

,,Við höfum sagt að við viljum fá tveggja stafa tölu (í milljónum evra) og ef við fáum ekki slíkt tilboð þá mun það félag sem hefur áhuga ekki næla í leikmanninn," sagði Höness við tz dagblaðið.

,,Köln villl ekki borga það sem við förum fram á,"bætti hann við.

Höness sagði að hann vonaðist til að ganga frá samningi áður en janúar er á enda en meðal félaga sem vilja fá Podolski eru Tottenham, Manchester City, Roma og Marseille.
Slapp
banner
banner
banner