Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 04. janúar 2009 12:26
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: AFP 
Adriano að fá 150 þúsund evru sekt fyrir að mæta of seint?
Inter Milan ætlar að sekta brasilíska framherjann Adriano um 150 þúsund evrur fyrir að missa af fyrstu æfingu ársins en þetta kom fram í ítalska íþróttadagblaðinu La Gazzetta dello Sport í dag.

Félagið vill þar með leggja hæstu mögulegu sekt á leikmanninn sem er 30% af launum hans fyrir janúar mánuð, 150 þúsund evrur.

Inter mun leggja þessa kröfu fyrir agadómstól ítölsku deildarinnar samkvæmt því sem kemur fram í Gazzetta.

Adriano hafði verið í fríi í heimalandi sínu, Brasilíu, og mætti ekki á æfingu 2. janúar síðastliðinn. Hann mætti svo daginn eftir.

,,Mér finnst að hann verði að skilja að við viljum að hann sé ánægður og vinni við sömu aðstæður og aðrir til að líða vel sjálfum og leggja sitt fram til liðsins," sagði Javier Zanetti fyrirliði Inter á vefsíðu félagsins um málið.

Inter hefur misst þolinmæðina á Adriano og talið er að Jose Mourinho ætli að selja hann.
Slapp
banner
banner