Heimild: Setanta
Martin O'Neill knattspyrnustjóri Aston Villa verðmetur Ashley Young kantmann liðsins á 75 milljónir punda. O'Neill hefur mikið talað Young upp á tímabilinu og Real Madrid hefur sýnt honum áhuga.
Young kom til Aston Villa frá Watford fyrir tveimur árum síðan en þá var kaupverðið 9 milljónir punda og O'Neill telur að fari hann frá félaginu þurfi að koma verulega hátt tilboð sem yrði heimsmet.
,,Ef ég hefði hugsað að á endanum yrði leikmaðurinn þess virði þá hefði ég kannski borgað svona hátt, en ég hefði heldur viljað borga 5 milljónir punda fyrir Ashley þá," sagði O'Neill við News of the World.
,,Sú staðreynd að hann er 15 sinnum meira virði núna er lítilvæg."
Manchester City hefur þegar keypt Wayne Bridge frá Chelsea á 12 milljónir punda og O'Neill telur að félagið hafi breytt því hvernig lið fara út á leikmannamarkaðinn nú í janúar en ætlar ekki að berjast við þá.
,,Ef við erum á eftir sama leikmenni er útilokað að við getum keppt við City," sagði hann. ,,Pottþétt ekki."


